Leiðbeiningar · Abler

Svona tengir þú Abler við Ohana Wall

Þegar Abler er tengt sækir Ohana Wall æfingar og leiki barnanna sjálfkrafa og birtir þau á fjölskyldudagatalinu, í símanum og á veggskjánum. Tengingin er gerð einu sinni og tekur um fimm mínútur.

Tími
Um 5 mínútur
Tæki
Tölva með Chrome eða Edge, ekki hægt í síma
Þú þarft
Abler-aðgang foreldris sem sér börnin

Af hverju þarf tölvu?

Abler býður ekki upp á opið forritaskil (API) og hnappurinn „flytja í dagatal“ í appinu setur aðeins eina æfingu í einu inn í símadagatalið.

Ohana Wall notar þess í stað sömu innskráningu sem vafrinn þinn notar hjá Abler: tvær litlar „kökur“ (cookies). Þær sjást bara í þróunartólum tölvuvafra, símavafrar hafa þau ekki. Þess vegna er þetta gert í tölvu, en aðeins einu sinni.

Skrefin

  1. Skref 1

    Skráðu þig inn á abler.io í tölvu

    Opnaðu www.abler.io í Chrome eða Edge og skráðu þig inn með sama aðgangi sem þú notar í Abler-appinu. Aðgangurinn þarf að vera foreldraaðgangur sem sér æfingar barnanna.

    Gott að vita: Chrome og Edge eru einfaldast. Firefox virkar líka (flipinn heitir þar „Storage“). Í Safari þarf fyrst að kveikja á „Develop“-valmyndinni í stillingum.

  2. Skref 2

    Opnaðu þróunartól vafrans

    Á Windows: ýttu á F12 eða Ctrl + Shift + I. Á Mac: Cmd + Option + I.

    Ef flýtileiðin virkar ekki: smelltu á ⋮ (þrjá punkta) efst til hægri, svo More tools og Developer tools.

    Það sem þú leitar að
    F12Ctrl + Shift + ICmd + Option + I
  3. Skref 3

    Finndu kökurnar frá abler.io

    Smelltu á flipann Application efst í þróunartólunum. Ef þú sérð hann ekki, smelltu á » til að sjá fleiri flipa.

    Vinstra megin, undir Storage, opnaðu Cookies og veldu https://www.abler.io. Þá birtist tafla með kökunum.

    Það sem þú leitar að
    ApplicationStorage → Cookieshttps://www.abler.io
  4. Skref 4

    Afritaðu refreshToken

    Í töflunni er lína sem heitir refreshToken. Skrifaðu „refresh“ í leitarreitinn fyrir ofan töfluna ef listinn er langur.

    Tvísmelltu á gildið í Value-dálknum, veldu allt (Ctrl + A / Cmd + A) og afritaðu (Ctrl + C / Cmd + C). Gildið er langur strengur af stöfum og á að afritast í heilu lagi.

    Það sem þú leitar að
    refreshTokenValue

    Gott að vita: Afritaðu líka gildið í línunni id_token ef þú vilt. Það er valfrjálst en flýtir fyrir fyrstu tengingu.

  5. Skref 5

    Límdu í Ohana Wall

    Í sömu tölvu, opnaðu www.ohanawall.com/app/settings og finndu Abler-spjaldið.

    Límdu refreshToken í efri reitinn (og id_token í neðri ef þú afritaðir það) og smelltu á Connect Abler. Ohana Wall staðfestir gildin við Abler og sækir næstu vikur strax.

    Það sem þú leitar að
    Settings → AblerConnect Abler

    Gott að vita: Gildin sem þú límir eru notuð einu sinni og skipt út fyrir ný. Ef þú þarft að tengja aftur síðar þarftu að afrita ný gildi úr vafranum.

  6. Skref 6

    Paraðu börnin við fjölskyldumeðlimi

    Undir „Children in Abler“ birtast iðkendurnir sem Abler sér. Veldu fjölskyldumeðlim fyrir hvert barn.

    Æfingar barns birtast ekki á veggnum fyrr en það hefur verið parað, þannig kemst ekkert ómerkt inn á dagatalið. Samstilling keyrir strax þegar þú parar.

    Það sem þú leitar að
    Children in Abler

Það sem birtist á veggnum

Æfingar og leikir hvers barns koma inn á fjölskyldudagatalið með gulum lit og litlu Abler-merki, í rönd viðkomandi barns. Breytingar frá þjálfara eða félagi, færð æfing, felld niður eða nýtt mót, skila sér sjálfkrafa á 15 mínútna fresti.

Ohana Wall heldur Abler-innskráningunni lifandi sjálft. Þú kemur aðeins aftur hingað ef Abler skráir tenginguna út, til dæmis eftir að þú breytir lykilorðinu þínu. Þá sýnir Abler-spjaldið „Login expired“ og þú endurtekur skrefin.

Öryggi

Kökurnar eru dulkóðaðar á netþjóni Ohana Wall, eru aldrei sendar í vafra og aldrei skrifaðar í log. Þær veita aðeins lesaðgang að dagatalinu í Abler. Ohana Wall skráir ekkert, breytir engu og svarar engum mætingum fyrir þig.

Þú getur rofið tenginguna hvenær sem er með „Disconnect“ í Abler-spjaldinu. Þá eru öll innfluttu Abler-atvikin fjarlægð af dagatalinu.

Ef eitthvað strandar

„Abler rejected those cookies“

Gildið er líklega ekki heilt eða þegar úrelt. Endurhladdu abler.io (F5), gakktu úr skugga um að þú sért innskráð(ur), afritaðu refreshToken upp á nýtt með tvísmelli, Ctrl/Cmd + A og Ctrl/Cmd + C, og límdu aftur.

Ég sé enga refreshToken-línu

Annað hvort ertu ekki innskráð(ur) á abler.io eða valdi rangt lén í Cookies-listanum. Veldu https://www.abler.io (ekki undirlén) og endurhladdu síðuna með þróunartólin opin.

Engin börn birtast undir „Children in Abler“

Abler skilar aðeins iðkendum sem eiga viðburði á næstu vikum. Ef þjálfarinn hefur ekki sett inn æfingar enn, smelltu á „Sync now“ þegar þær eru komnar. Aðgangurinn þarf líka að vera foreldraaðgangur sem er tengdur við börnin í Abler.

Vafrinn minn bað mig að skrá mig inn í Abler aftur

Það getur gerst einu sinni eftir tenginguna, því Abler gefur út nýja innskráningu til Ohana Wall. Skráðu þig bara inn aftur. Tengingin við Ohana Wall er óbreytt.

Abler-spjaldið segir „Login expired“

Abler skráði tenginguna út, oftast eftir lykilorðsbreytingu. Endurtaktu skref 1 til 5 með nýjum gildum. Pörun barnanna helst óbreytt.

Ég er bara með símann

Sendu þér hlekkinn á þessa síðu (ohanawall.com/hjalp/abler) og opnaðu hann í tölvu þegar þú hefur tíma. Allt annað í Ohana Wall, Mentor, Google, Apple, matseðill og listar, er hægt að setja upp í símanum.

Tengt efni

Ekki með Ohana Wall enn?

Frítt í 30 daga, ekkert greiðslukort. Æfingarnar úr Abler á vegginn í eldhúsinu.

Prófaðu frítt

Síðast uppfært: 15. september 2026 · Read this guide in English